Biblían, Jóhannesarguðspjall, Kafli 2. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10999&pid=45&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Jóhannesarguðspjall

Biblían

Lúkasarguðspjall Jóhannesarguðspjall Postulasagan

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

1 Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar.

2 Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans.

3 En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: ,,Þeir hafa ekki vín.``

4 Jesús svarar: ,,Hvað varðar það mig og þig, kona? Minn tími er ekki enn kominn.``

5 Móðir hans sagði þá við þjónana: ,,Gjörið það, sem hann kann að segja yður.``

6 Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun, og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá.

7 Jesús segir við þá: ,,Fyllið kerin vatni.`` Þeir fylltu þau á barma.

8 Síðan segir hann: ,,Ausið nú af og færið veislustjóra.`` Þeir gjörðu svo.

9 Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki, hvaðan það var, en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann

10 og sagði: ,,Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara, er menn gjörast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú.``

11 Þetta fyrsta tákn sitt gjörði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína, og lærisveinar hans trúðu á hann.

Jóhannesarguðspjall 2:11 - The Wedding at Cana
The Wedding at Cana
12 Eftir þetta fór hann ofan til Kapernaum ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum. Þar voru þau nokkra daga.

13 Nú fóru páskar Gyðinga í hönd, og Jesús hélt upp til Jerúsalem.

14 Þar sá hann í helgidóminum þá, er seldu naut, sauði og dúfur, og víxlarana, sem sátu þar.

15 Þá gjörði hann sér svipu úr köðlum og rak alla út úr helgidóminum, líka sauðina og nautin. Hann steypti niður peningum víxlaranna og hratt um borðum þeirra,

16 og við dúfnasalana sagði hann: ,,Burt með þetta héðan. Gjörið ekki hús föður míns að sölubúð.``

Jóhannesarguðspjall 2:16 - Jesus Clears the Temple
Jesus Clears the Temple
17 Lærisveinum hans kom í hug, að ritað er: ,,Vandlæting vegna húss þíns mun tæra mig upp.``

18 Gyðingar sögðu þá við hann: ,,Hvaða tákn getur þú sýnt oss um það, að þú megir gjöra þetta?``

19 Jesús svaraði þeim: ,,Brjótið þetta musteri, og ég skal reisa það á þrem dögum.``

20 Þá sögðu Gyðingar: ,,Þetta musteri hefur verið fjörutíu og sex ár í smíðum, og þú ætlar að reisa það á þrem dögum!``

21 En hann var að tala um musteri líkama síns.

22 Þegar hann var risinn upp frá dauðum, minntust lærisveinar hans, að hann hafði sagt þetta, og trúðu ritningunni og orðinu, sem Jesús hafði talað.

23 Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni, fóru margir að trúa á nafn hans, því þeir sáu þau tákn, sem hann gjörði.

24 En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn, því hann þekkti alla.Hann þurfti þess ekki, að neinn bæri öðrum manni vitni; hann vissi sjálfur, hvað í manni býr.

25 Hann þurfti þess ekki, að neinn bæri öðrum manni vitni; hann vissi sjálfur, hvað í manni býr.

<< ← Prev Top Next → >>