Biblían, Lúkasarguðspjall, Kafli 21. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10994&pid=44&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Lúkasarguðspjall

Biblían

Markúsarguðspjall Lúkasarguðspjall Jóhannesarguðspjall

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24

1 Þá leit hann upp og sá auðmenn leggja gjafir sínar í fjárhirsluna.

2 Hann sá og ekkju eina fátæka leggja þar tvo smápeninga.

3 Þá sagði hann: ,,Ég segi yður með sanni, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir.

4 Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína.``

5 Einhverjir höfðu orð á, að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús:

6 ,,Þér horfið á þetta, en þeir dagar munu koma, að hér stendur ekki eftir steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.``

7 En þeir spurðu hann: ,,Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að það sé að koma fram?``

8 Hann svaraði: ,,Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Það er ég!` og ,Tíminn er í nánd!` Fylgið þeim ekki.

9 En þegar þér spyrjið hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara, en endirinn kemur ekki samstundis.``

10 Síðan sagði hann við þá: ,,Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki,

11 þá verða landskjálftar miklir og drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum, en ógnir og tákn mikil á himni.

12 En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns.

13 Þetta veitir yður tækifæri til vitnisburðar.

14 En festið það vel í huga að vera ekki fyrirfram að hugsa um, hvernig þér eigið að verjast,

15 því ég mun gefa yður orð og visku, sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið.

16 Jafnvel foreldrar og bræður, frændur og vinir munu framselja yður, og sumir yðar munu líflátnir.

17 Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns,

18 en ekki mun týnast eitt hár á höfði yðar.

19 Verið þrautseigir og þér munuð ávinna sálir yðar.

20 En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið, að eyðing hennar er í nánd.

21 Þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla, þeir sem í borginni eru, flytjist burt, og þeir sem eru á ekrum úti, fari ekki inn í hana.

22 Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist, sem ritað er.

23 Vei þeim, sem þungaðar eru, og þeim sem börn hafa á brjósti á þeim dögum, því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir lýð þessum.

24 Þeir munu falla fyrir sverðseggjum og herleiddir verða til allra þjóða, og Jerúsalem verður fótum troðin af heiðingjum, þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.

25 Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný.

26 Menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbyggðina, því að kraftar himnanna munu bifast.

27 Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð.

28 En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd.``

29 Hann sagði þeim og líkingu: ,,Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám.

30 Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður, að sumarið er í nánd.

31 Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd.

32 Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt er komið fram.

33 Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.

34 Hafið gát á sjálfum yður, að hjörtu yðar þyngist ekki við svall og drykkju né áhyggjur þessa lífs og komi svo dagur sá skyndilega yfir yður

35 eins og snara. En koma mun hann yfir alla menn, sem byggja gjörvalla jörð.

36 Vakið því allar stundir og biðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir Mannssyninum.``

37 Á daginn var hann að kenna í helgidóminum, en fór og dvaldist um nætur á Olíufjallinu, sem svo er nefnt.Og allt fólkið kom árla á morgnana til hans í helgidóminn að hlýða á hann.

38 Og allt fólkið kom árla á morgnana til hans í helgidóminn að hlýða á hann.

<< ← Prev Top Next → >>