Biblían, Lúkasarguðspjall, Kafli 7. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10980&pid=44&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Lúkasarguðspjall

Biblían

Markúsarguðspjall Lúkasarguðspjall Jóhannesarguðspjall

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24

1 Þá er hann hafði lokið máli sínu í áheyrn lýðsins, fór hann til Kapernaum.

2 Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón, sem hann mat mikils. Þjónninn var sjúkur og dauðvona.

3 Þegar hundraðshöfðinginn heyrði um Jesú, sendi hann til hans öldunga Gyðinga og bað hann koma og bjarga lífi þjóns síns.

4 Þeir komu til Jesú, báðu hann ákaft og sögðu: ,,Verður er hann þess, að þú veitir honum þetta,

5 því að hann elskar þjóð vora, og hann hefur reist samkunduna handa oss.``

6 Jesús fór með þeim. Þegar hann átti skammt til hússins, sendi hundraðshöfðinginn vini sína til hans og lét segja við hann: ,,Ómaka þig ekki, herra, því að ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt.

7 Þess vegna hef ég ekki heldur talið sjálfan mig verðan þess að koma til þín. En mæl þú eitt orð, og mun sveinn minn heill verða.

8 Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: ,Far þú,` og hann fer, og við annan: ,Kom þú,` og hann kemur, og við þjón minn: ,Gjör þetta,` og hann gjörir það.``

9 Þegar Jesús heyrði þetta, furðaði hann sig á honum, sneri sér að mannfjöldanum, sem fylgdi honum, og mælti: ,,Ég segi yður, ekki einu sinni í Ísrael hef ég fundið þvílíka trú.``

10 Sendimenn sneru þá aftur heim og fundu þjóninn heilan heilsu.

11 Skömmu síðar bar svo við, að Jesús hélt til borgar, sem heitir Nain, og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi.

12 Þegar hann nálgaðist borgarhliðið, þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar, sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni.

13 Og er Drottinn sá hana, kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: ,,Grát þú eigi!``

14 Og hann gekk að og snart líkbörurnar, en þeir, sem báru, námu staðar. Þá sagði hann: ,,Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!``

15 Hinn látni settist þá upp og tók að mæla, og Jesús gaf hann móður hans.

Lúkasarguðspjall 7:15 - Jesus Raises the Widow\'s Son
Jesus Raises the Widow\'s Son
16 En ótti greip alla, og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: ,,Spámaður mikill er risinn upp meðal vor,`` og ,,Guð hefur vitjað lýðs síns.``

17 Og þessi fregn um hann barst út um alla Júdeu og allt nágrennið.

18 Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Hann kallaði þá til sín tvo lærisveina sína,

19 sendi þá til Drottins og lét spyrja: ,,Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?``

20 Mennirnir fóru til hans og sögðu: ,,Jóhannes skírari sendi okkur til þín og spyr: ,Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?```

21 Á þeirri stundu læknaði hann marga af sjúkdómum, meinum og illum öndum og gaf mörgum blindum sýn.

22 Og hann svaraði þeim: ,,Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þið hafið séð og heyrt: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi.

23 Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér.``

24 Þá er sendimenn Jóhannesar voru burt farnir, tók hann að tala til mannfjöldans um Jóhannes: ,,Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn?

25 Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, í konungssölum er þá að finna, sem skartklæðin bera og lifa í sællífi.

26 Hvað fóruð þér þá að sjá? Spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann.

27 Hann er sá sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.

28 Ég segi yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes. En hinn minnsti í Guðs ríki er honum meiri.``

29 Og allur lýðurinn, sem á hlýddi, og enda tollheimtumenn, viðurkenndu réttlæti Guðs og létu skírast af Jóhannesi.

30 En farísear og lögvitringar gjörðu að engu áform Guðs um þá og létu ekki skírast af honum.

31 ,,Við hvað á ég þá að líkja mönnum þessarar kynslóðar? Hverju eru þeir líkir?

32 Líkir eru þeir börnum, sem á torgi sitja og kallast á: ,Vér lékum fyrir yður á flautu, og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð, og ekki vilduð þér gráta.`

33 Nú kom Jóhannes skírari, át ekki brauð né drakk vín, og þér segið: ,Hann hefur illan anda.`

34 Og Mannssonurinn er kominn, etur og drekkur, og þér segið: ,Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra!`

35 En spekin hefur rétt fyrir sér, það staðfesta öll börn hennar.``

36 Farísei nokkur bauð honum að eta hjá sér, og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs.

37 En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís, að hann sat að borði í húsi faríseans. Kom hún þá með alabastursbuðk með smyrslum,

38 nam staðar að baki honum til fóta hans grátandi, tók að væta fætur hans með tárum sínum, þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti þá og smurði með smyrslunum.

39 Þegar faríseinn, sem honum hafði boðið, sá þetta, sagði hann við sjálfan sig: ,,Væri þetta spámaður, mundi hann vita, hver og hvílík sú kona er, sem snertir hann, að hún er bersyndug.``

40 Jesús sagði þá við hann: ,,Símon, ég hef nokkuð að segja þér.`` Hann svaraði: ,,Seg þú það, meistari.``

41 ,,Tveir menn voru skuldugir lánveitanda nokkrum. Annar skuldaði honum fimm hundruð denara, en hinn fimmtíu.

42 Nú gátu þeir ekkert borgað, og þá gaf hann báðum upp. Hvor þeirra skyldi nú elska hann meira?``

43 Símon svaraði: ,,Sá, hygg ég, sem hann gaf meira upp.`` Jesús sagði við hann: ,,Þú ályktaðir rétt.``

44 Síðan sneri hann sér að konunni og sagði við Símon: ,,Sér þú konu þessa? Ég kom í hús þitt, og þú gafst mér ekki vatn á fætur mína, en hún vætti fætur mína tárum sínum og þerraði með hári sínu.

45 Ekki gafst þú mér koss, en hún hefur ekki látið af að kyssa fætur mína, allt frá því ég kom.

46 Ekki smurðir þú höfuð mitt olíu, en hún hefur smurt fætur mína með smyrslum.

47 Þess vegna segi ég þér: Hinar mörgu syndir hennar eru fyrirgefnar, enda elskar hún mikið, en sá elskar lítið, sem lítið er fyrirgefið.``

48 Síðan sagði hann við hana: ,,Syndir þínar eru fyrirgefnar.``

49 Þá tóku þeir, sem til borðs sátu með honum, að segja með sjálfum sér: ,,Hver er sá, er fyrirgefur syndir?``En hann sagði við konuna: ,,Trú þín hefur frelsað þig, far þú í friði.``

50 En hann sagði við konuna: ,,Trú þín hefur frelsað þig, far þú í friði.``
Lúkasarguðspjall 7:15 - Jesus Raises the Widow\'s Son
Jesus Raises the Widow\'s Son

<< ← Prev Top Next → >>