Biblían, Matteusarguðspjall, Kafli 2. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10931&pid=42&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Matteusarguðspjall

Biblían

Matteusarguðspjall Markúsarguðspjall

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28

1 Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs, komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem

2 og sögðu: ,,Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? Vér sáum stjörnu hans renna upp og erum komnir að veita honum lotningu.``

3 Þegar Heródes heyrði þetta, varð hann skelkaður og öll Jerúsalem með honum.

4 Og hann stefndi saman öllum æðstu prestum og fræðimönnum lýðsins og spurði þá: ,,Hvar á Kristur að fæðast?``

5 Þeir svöruðu honum: ,,Í Betlehem í Júdeu. En þannig er ritað hjá spámanninum:

6 Þú Betlehem, í landi Júda, ekki ertu síst meðal hefðarborga Júda. Því að höfðingi mun frá þér koma, sem verður hirðir lýðs míns, Ísraels.``

7 Þá kallaði Heródes vitringana til sín á laun og grófst eftir því hjá þeim, nær stjarnan hefði birst.

8 Hann sendi þá síðan til Betlehem og sagði: ,,Farið og spyrjist vandlega fyrir um barnið, og er þér finnið það látið mig vita, til þess að ég geti einnig komið og veitt því lotningu.``

9 Þeir hlýddu á konung og fóru. Og stjarnan, sem þeir sáu austur þar, fór fyrir þeim, uns hana bar þar yfir, sem barnið var.

10 Þegar þeir sáu stjörnuna, glöddust þeir harla mjög,

11 þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu, móður þess, féllu fram og veittu því lotningu. Síðan luku þeir upp fjárhirslum sínum og færðu því gjafir, gull, reykelsi og myrru.

Matteusarguðspjall 2:11 - The Magi Visit Jesus
The Magi Visit Jesus
12 En þar sem þeir fengu bendingu í draumi að snúa ekki aftur til Heródesar, fóru þeir aðra leið heim í land sitt.

13 Þegar þeir voru farnir, þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: ,,Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera, uns ég segi þér, því að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara því.``

Matteusarguðspjall 2:13 - Angel Tells Joseph to Flee to Egypt
Angel Tells Joseph to Flee to Egypt
14 Hann vaknaði, tók barnið og móður þess um nóttina og fór til Egyptalands.

Matteusarguðspjall 2:14 - The Flight to Egypt
The Flight to Egypt
15 Þar dvaldist hann þangað til Heródes var allur. Það sem Drottinn sagði fyrir munn spámannsins, skyldi rætast: ,,Frá Egyptalandi kallaði ég son minn.``

16 Þá sá Heródes, að vitringarnir höfðu gabbað hann, og varð afar reiður, sendi menn og lét myrða öll sveinbörn í Betlehem og nágrenni hennar, tvævetur og yngri, en það svaraði þeim tíma, er hann hafði komist að hjá vitringunum.

Matteusarguðspjall 2:16 - Herod Kills the Baby Boys
Herod Kills the Baby Boys
17 Nú rættist það, sem sagt var fyrir munn Jeremía spámanns:

18 Rödd heyrðist í Rama, grátur og kveinstafir miklir, Rakel grætur börnin sín og vill ekki huggast láta, því að þau eru ekki framar lífs.

19 Þegar Heródes var dáinn, þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi í Egyptalandi

20 og segir: ,,Rís upp, tak barnið og móður þess og far til Ísraelslands. Nú eru þeir dánir, sem sátu um líf barnsins.``

21 Hann tók sig upp og fór til Ísraelslands með barnið og móður þess.

22 En þá er hann heyrði, að Arkelás réð ríkjum í Júdeu í stað Heródesar föður síns, óttaðist hann að fara þangað, og hélt til Galíleubyggða eftir bendingu í draumi.Þar settist hann að í borg, sem heitir Nasaret, en það átti að rætast, sem sagt var fyrir munn spámannanna: ,,Nasarei skal hann kallast.``

23 Þar settist hann að í borg, sem heitir Nasaret, en það átti að rætast, sem sagt var fyrir munn spámannanna: ,,Nasarei skal hann kallast.``

<< ← Prev Top Next → >>