Biblían, Habakkuk, Kafli 2. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10905&pid=37&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Habakkuk

Biblían

Nahúm Habakkuk Sefanía

Kafli 1 2 3

1 Ég ætla að nema staðar á varðbergi mínu og ganga út á virkisvegginn og skyggnast um til þess að sjá, hvað hann talar við mig og hverju hann svarar umkvartan minni.

2 Þá svaraði Drottinn mér og sagði: Skrifa þú vitrunina upp og letra svo skýrt á spjöldin, að lesa megi viðstöðulaust.

3 Því að enn hefir vitrunin sinn ákveðna tíma, en hún skundar að takmarkinu og bregst ekki. Þótt hún dragist, þá vænt hennar, því að hún mun vissulega fram koma og ekki undan líða.

4 Sjá, hann er hrokafullur og ber eigi í brjósti sér ráðvanda sál, en hinn réttláti mun lifa fyrir trúfesti sína.

5 Vei ræningjanum, manninum sem girnist og eigi verður saddur, sem glennir sundur gin sitt eins og Hel og er óseðjandi eins og dauðinn, sem safnaði til sín öllum þjóðum og dró að sér alla lýði.

6 Munu eigi allir þessir kveða um hann háðkvæði og níð, _ gátur um hann? Menn munu segja: Vei þeim, sem rakar saman annarra fé _ hversu lengi? _ og hleður á sig pantteknum munum.

7 Munu eigi lánsalar þínir skyndilega upp rísa og þeir vakna, er að þér munu þrengja? Þá munt þú verða herfang þeirra.

8 Því að eins og þú hefir rænt margar þjóðir, svo munu nú allar hinar þjóðirnar ræna þig fyrir manndrápin og fyrir ofríkið, sem landið hefir beitt verið, borgin og allir íbúar hennar.

9 Vei þeim, sem sækist eftir illum ávinningi fyrir hús sitt til þess að geta byggt hreiður sitt hátt uppi, til þess að geta bjargað sér undan hendi ógæfunnar.

10 Þú tókst upp það ráð, sem varð húsi þínu til smánar, að afmá margar þjóðir, og bakaðir sjálfum þér sekt.

11 Því að steinarnir munu hrópa út úr múrveggnum og sperrur úr grindinni svara þeim.

12 Vei þeim, sem reisir stað með manndrápum og grundvallar borg með glæpum.

13 Kemur slíkt ekki frá Drottni allsherjar? Þjóðir vinna fyrir eldinn, og þjóðflokkar þreyta sig fyrir ekki neitt!

14 Því að jörðin mun verða full af þekking á dýrð Drottins, eins og djúp sjávarins vötnum hulið.

15 Vei þeim, sem gefur vinum sínum að drekka úr skál heiftar sinnar og gjörir þá jafnvel drukkna til þess að sjá blygðan þeirra.

16 Þú hefir mettað þig á smán, en ekki á heiðri. Drekk þú nú einnig og reika! Bikarinn í hægri hendi Drottins kemur nú til þín og vansi ofan á vegsemd þína.

17 Því að ofríkið, sem haft hefir verið í frammi við Líbanon, skal á þér bitna og dýradrápið hræða þig _ fyrir manndrápin og fyrir ofríkið, sem landið hefir beitt verið, borgin og allir íbúar hennar.

18 Hvað gagnar skurðmynd, að smiðurinn sker hana út, eða steypt líkneski og lygafræðari, að smiðurinn treystir á það, svo að hann býr til mállausa guði?

19 Vei þeim, sem segir við trédrumb: ,,Vakna þú! Rís upp!`` _ við dumban steininn. Mun hann geta frætt? Nei, þótt hann sé búinn gulli og silfri, þá er þó enginn andi í honum.En Drottinn er í sínu heilaga musteri, öll jörðin veri hljóð fyrir honum!

20 En Drottinn er í sínu heilaga musteri, öll jörðin veri hljóð fyrir honum!

<< ← Prev Top Next → >>