Biblían, Jeremía, Kafli 51. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10796&pid=26&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jeremía

Biblían

Jesaja Jeremía Harmljóðin

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52

1 Svo segir Drottinn: Sjá, ég vek upp eyðandi storm gegn Babýlon og gegn íbúum Kaldeu.

2 Ég sendi vinsara gegn Babýlon, að þeir vinsi hana og tæmi land hennar. Þegar þeir umkringja hana á óheilladegi,

3 skal enginn benda boga sinn né reigja sig í pansara sínum. Hlífið ekki æskumönnum hennar, helgið banni allan her hennar,

4 svo að vegnir menn falli í landi Kaldea og sverði lagðir hnígi á strætum hennar,

5 af því að land þeirra er fullt af sekt gegn Hinum heilaga í Ísrael. En Ísrael og Júda eru ekki yfirgefin af Guði sínum, Drottni allsherjar.

6 Flýið út úr Babýlon og hver og einn forði lífi sínu. Látið eigi tortíma yður vegna misgjörða hennar. Því að það er hefndartími Drottins, hann endurgeldur henni eins og hún hefir til unnið.

7 Babýlon var gullbikar í hendi Drottins, er gjörði alla jörðina drukkna. Af víni hennar drukku þjóðirnar, fyrir því létu þjóðirnar sem þær væru óðar.

8 Sviplega er Babýlon fallin og sundurmoluð. Kveinið yfir henni! Sækið smyrsl við kvölum hennar, má vera að hún verði læknuð.

9 ,,Vér ætluðum að lækna Babýlon, en hún var ólæknandi. Yfirgefið hana, og förum hver til síns lands, því að refsidómur sá, er yfir hana gengur, nær til himins og gnæfir við ský.``

10 Drottinn hefir leitt í ljós vort réttláta málefni, komið, vér skulum kunngjöra í Síon verk Drottins, Guðs vors!

11 Fægið örvarnar, takið á yður skjölduna! Drottinn hefir vakið hugmóð Medíukonunga, því að fyrirætlan hans er miðuð gegn Babýlon til þess að eyða hana. Því að það er hefnd Drottins, hefnd fyrir musteri hans.

12 Reisið merki gegn Babýlonsmúrum! Aukið vörðinn! Skipið verði! Setjið launsátur! Því að Drottinn hefir ákveðið og framkvæmir það, er hann hefir hótað Babýlonsbúum.

13 Þú, sem býr við hin miklu vötn, auðug að fjársjóðum, endadægur þitt er komið, lífdagar þínir taldir.

14 Drottinn allsherjar sver við sjálfan sig: Þótt ég hefði fyllt þig mönnum, eins og engisprettum, munu menn þó hefja siguróp yfir þér.

15 Hann, sem gjört hefir jörðina með krafti sínum, skapað heiminn af speki sinni og þanið út himininn af hyggjuviti sínu, _

16 þegar hann þrumar, svarar vatnagnýr í himninum, _ þegar hann lætur ský upp stíga frá endimörkum jarðar og gjörir leiftur til þess að búa rás regninu og hleypir vindinum út úr forðabúrum hans,

17 þá stendur sérhver maður undrandi og skilur þetta ekki, og sérhver gullsmiður skammast sín fyrir líkneski sitt, því að hin steyptu líkneski hans eru tál, og í þeim er enginn andi.

18 Hégómi eru þau, háðungar-smíði, þegar hegningartími þeirra kemur, er úti um þau.

19 En hlutdeild Jakobs er ekki þeim lík, heldur er hann skapari alls, og Ísrael er hans eignarkynkvísl. Drottinn allsherjar er nafn hans.

20 Þú varst mér hamar, hervopn, að ég gæti molað sundur með þér þjóðir og eytt með þér konungsríki,

21 að ég gæti molað sundur með þér hesta og reiðmenn, að ég gæti molað sundur með þér vagna og þá, sem í þeim óku,

22 að ég gæti molað sundur með þér karla og konur, að ég gæti molað sundur með þér gamla og unga, að ég gæti molað sundur með þér æskumenn og meyjar,

23 að ég gæti molað sundur með þér hirða og hjarðir, að ég gæti molað sundur með þér akurmenn og sameyki þeirra, að ég gæti molað sundur með þér jarla og landstjóra!

24 Ég endurgeld Babel og öllum íbúum Kaldeu allt það illt, er þeir hafa gjört Síon að yður áhorfandi _ segir Drottinn.

25 Sjá, ég ætla að finna þig, þú Skaðræðisfjall _ segir Drottinn _ þú sem skaðræði vannst allri jörðinni, og ég útrétti hönd mína gegn þér og velti þér ofan af hömrunum og gjöri þig að brenndu fjalli.

26 Úr þér skulu menn ekki sækja hornsteina, né undirstöðusteina, heldur skalt þú verða að eilífri auðn _ segir Drottinn.

27 Reisið merki á jörðinni! Þeytið lúðurinn meðal þjóðanna! Vígið þjóðir móti henni! Kallið móti henni konungsríki Ararats, Minní og Askenas! Skipið herforingja móti henni! Færið fram hesta, líka byrstum engisprettum!

28 Vígið þjóðir móti henni, konunga Medíu, jarla hennar og landstjóra og allt land ríkis þeirra.

29 Þá nötrar jörðin og bifast, því að fyrirætlanir Drottins gegn Babýlon rætast, með því að hann gjörir Babýlon að auðn, svo að enginn býr þar.

30 Kappar Babýlons hætta við að berjast, þeir halda kyrru fyrir í virkjunum, hreysti þeirra er þorrin, þeir eru orðnir að konum. Menn hafa lagt eld í híbýli hennar, slagbrandar hennar eru brotnir.

31 Hlaupasveinn hleypur móti hlaupasveini og sendiboði móti sendiboða til þess að boða Babelkonungi að borg hans sé unnin öllumegin,

32 brýrnar teknar, sefmýrarnar brenndar í eldi og hermennirnir skelfdir.

33 Já, svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Dóttirin Babýlon líkist láfa á þeim tíma, þá er hann er troðinn. Innan skamms kemur og uppskerutími fyrir hana.

34 ,,Nebúkadresar Babelkonungur hefir etið oss, hefir eytt oss, hann gjörði úr oss tómt ílát. Hann svalg oss eins og dreki, kýldi vömb sína og rak oss burt úr unaðslandi voru!``

35 ,,Það ofbeldi og sú misþyrming, sem ég hefi orðið fyrir, komi yfir Babýlon,`` segi Síonbúar, og ,,blóð mitt komi yfir íbúa Kaldeu,`` segi Jerúsalem.

36 Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, ég tek að mér málefni þitt og læt þig ná rétti þínum. Ég þurrka upp vatn Babýlons og læt uppsprettu hennar þorna.

37 Og hún skal verða að grjóthrúgu, að sjakalabæli, að skelfing og háði, enginn skal þar búa.

38 Þeir öskra allir eins og ung ljón, gnöllra eins og ljónshvolpar.

39 En þegar græðgihitinn er kominn í þá, vil ég búa þeim veislu og gjöra þá drukkna, til þess að þeir verði kátir. Því næst skulu þeir sofna eilífum svefni og ekki vakna framar! _ segir Drottinn.

40 Ég læt þá hníga sem lömb til slátrunar, sem hrúta ásamt höfrum.

41 Hversu varð Sesak unnin og tekin, hún er fræg var um víða veröld! Hversu er Babýlon orðin að skelfingu meðal þjóðanna!

42 Sjórinn gekk yfir Babýlon, hún huldist gnýjandi bylgjum hans.

43 Borgir hennar urðu að auðn, að þurru landi og heiði. Enginn maður mun framar búa þar né nokkurt mannsbarn fara þar um.

44 Ég vitja Bels í Babýlon og tek út úr munni hans það, er hann hefir gleypt, og eigi skulu þjóðir framar streyma til hans. Babýlonsmúr hrynur einnig.

45 Far út úr henni, lýður minn, og hver og einn forði lífi sínu undan hinni brennandi reiði Drottins.

46 Látið ekki hugfallast og verðið ekki hræddir við tíðindin, sem heyrast í landinu. Þessi tíðindi koma þetta árið og því næst önnur tíðindi annað árið: ofbeldi er framið í landinu, og drottnari rís mót drottnara.

47 Fyrir því, sjá, þeir dagar koma, að ég vitja skurðgoða Babýlons, og þá mun allt land hennar verða til skammar og allir vegnir menn hennar falla inni í henni.

48 Þá mun himinn og jörð og allt, sem í þeim er, hlakka yfir Babýlon, því að úr norðri brjótast eyðendurnir inn yfir hana _ segir Drottinn.

49 Babýlon verður að falla vegna hinna vegnu manna af Ísrael, eins og vegnir menn hafa orðið að falla um alla jörðina vegna Babýlon.

50 Þér, sem undan sverðinu hafið komist, haldið þér áfram, standið ekki við. Minnist Drottins í fjarlægð og hafið Jerúsalem í huga.

51 Vér erum orðnir til skammar, því að vér urðum varir við fyrirlitningu, blygðun hylur auglit vor, því að útlendir menn hafa brotist inn yfir helgidóma musteris Drottins.

52 Fyrir því, sjá, þeir dagar munu koma _ segir Drottinn _ að ég vitja skurðgoða hennar, og sverði lagðir menn skulu stynja í öllu landi hennar.

53 Þó að Babýlon hefji sig til himins og þó að hún gjöri vígi sitt svo hátt, að það verði ókleift, þá munu þó frá mér koma eyðendur yfir hana _ segir Drottinn.

54 Heyr! Neyðarkvein frá Babýlon og mikil eyðilegging úr landi Kaldea!

55 Já, Drottinn eyðir Babýlon og upprætir úr henni hinn mikla hávaða. Bylgjur þeirra gnýja eins og stór vötn, gjallandi kveður við óp þeirra.

56 Því að eyðandi kemur yfir hana, yfir Babýlon, og kappar hennar verða teknir höndum og bogar þeirra brotnir, því að Drottinn er Guð endurgjaldsins, hann endurgeldur áreiðanlega.

57 Ég gjöri drukkna höfðingja hennar og vitringa, jarla hennar og landstjóra og kappa hennar. Þeir skulu sofna eilífum svefni og eigi vakna framar _ segir konungurinn. Drottinn allsherjar er nafn hans.

58 Svo segir Drottinn allsherjar: Hinn víði Babýlonsmúr skal rifinn verða til grunna og hin háu borgarhlið hennar brennd í eldi, _ já, lýðir vinna fyrir gýg og þjóðir leggja á sig erfiði fyrir eldinn!

59 Skipunin sem Jeremía spámaður lagði fyrir Seraja Neríason, Mahasejasonar, þá er hann fór í erindum Sedekía Júdakonungs til Babýlon, á fjórða ári ríkisstjórnar hans. En Seraja var herbúðastjóri.

60 En Jeremía skrifaði alla þá ógæfu, er koma mundi yfir Babýlon, í eina bók _ allar þessar ræður, sem ritaðar eru um Babýlon.

61 Jeremía sagði við Seraja: ,,Þá er þú kemur til Babýlon, þá sjá til, að þú lesir upp öll þessi orð,

62 og seg: ,Drottinn, þú hefir sjálfur hótað þessum stað að afmá hann, svo að enginn byggi framar í honum, hvorki menn né skepnur, því að eilífri auðn skal hún verða.`

63 Og þegar þú hefir lesið bók þessa til enda, þá bind þú við hana stein og kasta þú henni út í Efrat,og seg: ,Svo skal Babýlon sökkva og ekki rísa upp aftur, vegna þeirrar ógæfu, er ég læt yfir hana koma!``` Hér lýkur orðum Jeremía.

64 og seg: ,Svo skal Babýlon sökkva og ekki rísa upp aftur, vegna þeirrar ógæfu, er ég læt yfir hana koma!``` Hér lýkur orðum Jeremía.

<< ← Prev Top Next → >>