Biblían, Ljóðaljóðin, Kafli 2. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10673&pid=24&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Ljóðaljóðin

Biblían

Prédikarinn Ljóðaljóðin Jesaja

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8

1 Ég er narsissa á Saronvöllum, lilja í dölunum.

2 Eins og lilja meðal þyrna, svo er vina mín meðal meyjanna.

3 Eins og apaldur meðal skógartrjánna, svo er unnusti minn meðal sveinanna. Í skugga hans þrái ég að sitja, og ávextir hans eru mér gómsætir.

4 Hann leiddi mig í vínhúsið og merki hans yfir mér var elska.

5 Endurnærið mig með rúsínukökum, hressið mig á eplum, því að ég er sjúk af ást.

6 Vinstri hönd hans sé undir höfði mér, en hin hægri umfaðmi mig!

Ljóðaljóðin 2:6 - Song of Solomon: Rose of Sharon
Song of Solomon: Rose of Sharon
7 Ég særi yður, Jerúsalemdætur, við skógargeiturnar, eða við hindirnar í haganum: Vekið ekki, vekið ekki elskuna, fyrr en hún sjálf vill.

8 Heyr, það er unnusti minn! Sjá, þar kemur hann, stökkvandi yfir fjöllin, hlaupandi yfir hæðirnar.

9 Unnusti minn er líkur skógargeit eða hindarkálfi. Hann stendur þegar bak við húsvegginn, horfir inn um gluggann, gægist inn um grindurnar.

10 Unnusti minn tekur til máls og segir við mig: ,,Stattu upp, vina mín, fríða mín, æ kom þú!

11 Því sjá, veturinn er liðinn, rigningarnar um garð gengnar, _ á enda.

12 Blómin eru farin að sjást á jörðinni, tíminn til að sniðla vínviðinn er kominn, og kurr turtildúfunnar heyrist í landi voru.

13 Ávextir fíkjutrésins eru þegar farnir að þroskast, og ilminn leggur af blómstrandi vínviðnum. Stattu upp, vina mín, fríða mín, æ kom þú!

14 Dúfan mín í klettaskorunum, í fylgsni fjallhnúksins, lát mig sjá auglit þitt, lát mig heyra rödd þína! Því að rödd þín er sæt og auglit þitt yndislegt.

15 Náið fyrir oss refunum, yrðlingunum, sem skemma víngarðana, því að víngarðar vorir standa í blóma.``

16 Unnusti minn er minn, og ég er hans, hans, sem heldur hjörð sinni til haga meðal liljanna.Þangað til dagurinn verður svalur og skuggarnir flýja, snú þú aftur, unnusti minn, og líkst þú skógargeitinni eða hindarkálfi á anganfjöllum.

17 Þangað til dagurinn verður svalur og skuggarnir flýja, snú þú aftur, unnusti minn, og líkst þú skógargeitinni eða hindarkálfi á anganfjöllum.

<< ← Prev Top Next → >>