Biblían, Orðskviðirnir, Kafli 16. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10644&pid=22&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Orðskviðirnir

Biblían

Sálmarnir Orðskviðirnir Prédikarinn

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

1 Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi, en svar tungunnar kemur frá Drottni.

2 Manninum þykja allir sínir vegir hreinir, en Drottinn prófar hugarþelið.

3 Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgengt verða.

4 Allt hefir Drottinn skapað til síns ákveðna marks, svo og guðleysingjann til óheilladagsins.

5 Sérhver hrokafullur maður er Drottni andstyggð, hér er höndin upp á það: hann sleppur ekki óhegndur!

6 Með elsku og trúfesti er friðþægt fyrir misgjörð, og fyrir ótta Drottins forðast menn hið illa.

7 Þegar Drottinn hefir þóknun á breytni einhvers manns, þá sættir hann og óvini hans við hann.

8 Betra er lítið með réttu en miklar tekjur með röngu.

9 Hjarta mannsins upphugsar veg hans, en Drottinn stýrir gangi hans.

10 Goðsvar er á vörum konungsins, í dómi mun munni hans ekki skeika.

11 Rétt vog og reisla koma frá Drottni, lóðin á vogarskálunum eru hans verk.

12 Að fremja ranglæti er konungum andstyggð, því að hásætið staðfestist fyrir réttlæti.

13 Réttlátar varir eru yndi konunga, og þeir elska þann, er talar hreinskilni.

14 Konungsreiði er sem sendiboði dauðans, en vitur maður sefar hana.

15 Í mildilegu augnaráði konungs er líf, og hylli hans er sem vorregns-ský.

16 Hversu miklu betra er að afla sér visku en gulls og ákjósanlegra að afla sér hygginda en silfurs.

17 Braut hreinskilinna er að forðast illt, að varðveita sálu sína er að gæta breytni sinnar.

18 Drambsemi er undanfari tortímingar, og oflæti veit á fall.

19 Betra er að vera lítillátur með auðmjúkum en að skipta herfangi með dramblátum.

20 Sá sem gefur gætur að orðinu, hreppir hamingju, og sæll er sá, sem treystir Drottni.

21 Sá sem er vitur í hjarta, verður hygginn kallaður, og sætleiki varanna eykur fræðslu.

22 Lífslind er hyggnin þeim, sem hana á, en ögun afglapanna er þeirra eigin flónska.

23 Hjarta spekingsins gjörir munn hans hygginn og eykur fræðsluna á vörum hans.

24 Vingjarnleg orð eru hunangsseimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin.

25 Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.

26 Hungur erfiðismannsins erfiðar með honum, því að munnur hans rekur á eftir honum.

27 Varmennið grefur óheillagröf, og á vörum hans er sem brennandi eldur.

28 Vélráður maður kveikir illdeilur, og rógberinn veldur vinaskilnaði.

29 Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn og leiðir hann á vondan veg.

30 Sá sem lokar augunum, upphugsar vélræði, sá sem kreistir saman varirnar, er albúinn til ills.

31 Gráar hærur eru heiðurskóróna, á vegi réttlætis öðlast menn hana.

32 Sá sem seinn er til reiði, er betri en kappi, og sá sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá sem vinnur borgir.Í skikkjufellingum eru teningarnir hristir, en Drottinn ræður, hvað upp kemur.

33 Í skikkjufellingum eru teningarnir hristir, en Drottinn ræður, hvað upp kemur.

<< ← Prev Top Next → >>