Biblían, Jobsbók, Kafli 35. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10471&pid=20&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jobsbók

Biblían

Esterarbók Jobsbók Sálmarnir

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42

1 Og Elíhú tók enn til máls og sagði:

2 Hyggur þú það vera rétt, kallar þú það ,,réttlæti mitt fyrir Guði,``

3 að þú spyr, hvað það stoði þig? ,,Hvaða gagn hefi ég af því, fremur en ef ég syndgaði?``

4 Ég ætla að veita þér andsvör í móti og vinum þínum með þér.

5 Horf þú á himininn og sjá, virtu fyrir þér skýin, sem eru hátt yfir þér.

6 Syndgir þú, hvað getur þú gjört honum? Og séu afbrot þín mörg, hvaða skaða gjörir þú honum?

7 Sért þú ráðvandur, hvað gefur þú honum, eða hvað þiggur hann af þinni hendi?

8 Mann, eins og þig, varðar misgjörð þín og mannsins barn ráðvendni þín.

9 Menn æpa að sönnu undan hinni margvíslegu kúgan, kveina undan armlegg hinna voldugu,

10 en enginn þeirra segir: ,,Hvar er Guð, skapari minn, sá er leiðir fram lofsöngva um nótt,

11 sem fræðir oss meira en dýr merkurinnar og gjörir oss vitrari en fugla loftsins?``

12 Þá æpa menn _ en hann svarar ekki _ undan drambsemi hinna vondu.

13 Nei, hégómamál heyrir Guð eigi, og hinn Almáttki gefur því engan gaum,

14 hvað þá, er þú segir, að þú sjáir hann ekki. Málið er lagt fram fyrir hann, og þú átt að bíða eftir honum.

15 En nú, af því að reiði hans hefir eigi refsað, á hann alls eigi að hafa vitað neitt um yfirsjónina!En Job opnar munninn til að mæla hégóma, heldur langar ræður í vanhyggju sinni.

16 En Job opnar munninn til að mæla hégóma, heldur langar ræður í vanhyggju sinni.

<< ← Prev Top Next → >>