Biblían, Jobsbók, Kafli 26. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10462&pid=20&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jobsbók

Biblían

Esterarbók Jobsbók Sálmarnir

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42

1 Þá svaraði Job og sagði:

2 En hvað þú hefir hjálpað hinum þróttlausa, stutt hinn máttvana armlegg!

3 En hvað þú hefir ráðið hinum óvitra og kunngjört mikla speki!

4 Fyrir hverjum hefir þú flutt ræðu þína, og hvers andi var það, sem gekk fram úr þér?

5 Andar hinna framliðnu í undirdjúpunum skelfast ásamt vötnunum og íbúum þeirra.

6 Naktir liggja undirheimar fyrir Guði og undirdjúpin skýlulaus.

7 Hann þenur norðrið út yfir auðninni og lætur jörðina svífa í tómum geimnum,

8 hann bindur vatnið saman í skýjum sínum, og þó brestur skýflókinn ekki undir því,

9 hann byrgir fyrir ásjónu hásætis síns með því að breiða ský sitt yfir hana.

10 Marklínu hefir hann dregið hringinn í kring á haffletinum, þar sem mætast ljós og myrkur.

11 Stoðir himinsins nötra og hræðast ógnun hans.

12 Með mætti sínum æsir hann hafið, og með hyggindum sínum sundurmolar hann hafdrekann.

13 Fyrir andgusti hans verður himinninn heiður, hönd hans leggur í gegn hinn flughraða dreka.Sjá, þetta eru aðeins ystu takmörk vega hans, og hversu lágt hvísl er það, sem vér heyrum! En þrumu máttarverka hans _ hver skilur hana?

14 Sjá, þetta eru aðeins ystu takmörk vega hans, og hversu lágt hvísl er það, sem vér heyrum! En þrumu máttarverka hans _ hver skilur hana?

<< ← Prev Top Next → >>