1 Þá svaraði Job og sagði:
2 Ég hefi heyrt nóg af slíku, hvimleiðir huggarar eruð þér allir saman.
3 Er orðavindurinn nú á enda? eða hvað knýr þig til andsvara?
4 Ég gæti líka talað eins og þér, ef þér væruð í mínum sporum, gæti spunnið saman ræður gegn yður og hrist yfir yður höfuðið,
5 ég gæti styrkt yður með munni mínum, og meðaumkun vara minna mundi lina þjáning yðar.
6 Þótt ég tali, þá linar ekki kvöl mína, og gjöri ég það ekki, hvaða létti fæ ég þá?
7 Miklu fremur hefir Guð nú örþreytt mig, _ þú hefir eytt öllu ættliði mínu,
8 hefir hremmt mig, og það er vitni í móti mér. Sjúkdómur minn rís í gegn mér, ákærir mig upp í opið geðið.
9 Reiði hans slítur mig sundur og ofsækir mig, hann nístir tönnum í móti mér, andstæðingur minn hvessir á mig augun.
10 Þeir glenna upp ginið í móti mér, löðrunga mig til háðungar, allir saman gjöra þeir samtök í móti mér.
11 Guð gefur mig á vald ranglátra og varpar mér í hendur óguðlegra.
12 Ég lifði áhyggjulaus, þá braut hann mig sundur, hann þreif í hnakkann á mér og molaði mig sundur og reisti mig upp sér að skotspæni.
13 Skeyti hans fljúga kringum mig, vægðarlaust sker hann sundur nýru mín, hellir galli mínu á jörðu.
14 Hann brýtur í mig skarð á skarð ofan og gjörir áhlaup á mig eins og hetja.
15 Ég hefi saumað sekk um hörund mitt og stungið horni mínu ofan í moldina.
16 Andlit mitt er þrútið af gráti, og svartamyrkur hvílir yfir hvörmum mínum,
17 þótt ekkert ranglæti sé í hendi minni og bæn mín sé hrein.
18 Jörð, hyl þú eigi blóð mitt, og kvein mitt finni engan hvíldarstað!
19 En sjá, á himnum er vottur minn og vitni mitt á hæðum.
20 Vinir mínir gjöra gys að mér _ til Guðs lítur auga mitt grátandi,
21 að hann láti manninn ná rétti sínum gagnvart Guði og skeri úr milli mannsins og vinar hans.Því að senn eru þessi fáu ár á enda, og ég fer burt þá leiðina, sem ég aldrei sný aftur.
22 Því að senn eru þessi fáu ár á enda, og ég fer burt þá leiðina, sem ég aldrei sný aftur. |