Biblían, Jobsbók, Kafli 5. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10441&pid=20&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jobsbók

Biblían

Esterarbók Jobsbók Sálmarnir

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42

1 Kalla þú bara! Ætli nokkur svari þér? og til hvers af hinum heilögu viltu snúa þér?

2 Því að gremjan drepur heimskingjann, og öfundin deyðir einfeldninginn.

3 Ég hefi að vísu séð heimskingjann festa djúpar rætur, en varð þó skyndilega að formæla bústað hans.

4 Börn hans eru fjarlæg hjálpinni, þau eru troðin niður í hliðinu, og enginn bjargar.

5 Uppskeru hans etur hinn hungraði, já, jafnvel inn í þyrna sækir hann hana, og hinir þyrstu þrá eigur hans.

6 Því að óhamingjan vex ekki upp úr moldinni, og mæðan sprettur ekki upp úr jarðveginum.

7 Nei, maðurinn fæðist til mæðu, eins og neistarnir fljúga upp í loftið.

8 En ég mundi snúa mér til hins Almáttka og bera málefni mitt upp fyrir Guði,

9 honum, sem gjörir mikla hluti og órannsakanlega, dásemdarverk, sem eigi verða talin,

10 sem gefur regn á jörðina og sendir vatn yfir vellina

11 til þess að hefja hina lítilmótlegu hátt upp, og til þess að hinir sorgbitnu öðlist mikla sælu;

12 honum, sem gjörir að engu áform hinna lævísu, svo að hendur þeirra koma engu varanlegu til leiðar,

13 sem veiðir vitringana í slægð þeirra, svo að ráð hinna slungnu kollsteypast.

14 Á daginn reka þeir sig á myrkur, og sem um nótt þreifa þeir fyrir sér um hádegið.

15 Þannig frelsar hann munaðarleysingjann úr gini þeirra og fátæklinginn undan valdi hins sterka.

16 Þannig er von fyrir hinn vesala, og illskan lokar munni sínum.

17 Sjá, sæll er sá maður, er Guð hirtir, lítilsvirð því eigi ögun hins Almáttka.

18 Því að hann særir, en bindur og um, hann slær, og hendur hans græða.

19 Úr sex nauðum frelsar hann þig, og í hinni sjöundu snertir þig ekkert illt.

20 Í hallærinu frelsar hann þig frá dauða og í orustunni undan valdi sverðsins.

21 Fyrir svipu tungunnar ert þú falinn og þarft ekkert að óttast, er eyðingin kemur.

22 Að eyðing og hungri getur þú hlegið, og villidýrin þarft þú ekki að óttast.

23 Því að þú ert í bandalagi við steina akurlendisins, og dýr merkurinnar eru í sátt við þig.

24 Og þú munt komast að raun um, að tjald þitt er heilt, þú kannar bústað þinn og saknar einskis.

25 Og þú munt komast að raun um, að niðjar þínir eru margir og afsprengi þitt sem gras á jörðu.

26 Í hárri elli munt þú ganga inn í gröfina, eins og kornbundinið er látið í hlöðuna á sínum tíma.Sjá, þetta höfum vér útgrundað, þannig er það. Heyr þú það og set það vel á þig!

27 Sjá, þetta höfum vér útgrundað, þannig er það. Heyr þú það og set það vel á þig!

<< ← Prev Top Next → >>