Biblían, Fyrri kroníkubók, Kafli 24. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10362&pid=15&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Fyrri kroníkubók

Biblían

Síðari konungabók Fyrri kroníkubók Síðari kroníkubók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29

1 Aronsniðjar höfðu og flokkaskipun fyrir sig. Synir Arons voru: Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.

2 En Nadab og Abíhú dóu á undan föður sínum og áttu eigi sonu, og urðu svo þeir Eleasar og Ítamar prestar.

3 Og þeir Davíð og Sadók af Eleasarsniðjum og Ahímelek af Ítamarsniðjum skiptu þeim niður í starfsflokka eftir embættum þeirra.

4 En það kom í ljós, að af Eleasarsniðjum voru fleiri höfðingjar en af Ítamarsniðjum. Fyrir því skiptu menn þeim svo, að af Eleasarsniðjum urðu sextán ætthöfðingjar, en átta af Ítamarsniðjum.

5 Og hvorum tveggja skiptu menn eftir hlutkesti, því að helgidómshöfðingjar og Guðs höfðingjar voru af niðjum Eleasars og af niðjum Ítamars.

6 Og Semaja Netaneelsson ritari, einn af levítum, skráði þá í viðurvist konungs og höfðingjanna og Sadóks prests og Ahímeleks Abjatarssonar og ætthöfðingja prestanna og levítanna. Var ein ætt tekin frá af Eleasar og ein af Ítamar.

7 Fyrsti hluturinn féll á Jójaríb, annar á Jedaja,

8 þriðji á Harím, fjórði á Seórím,

9 fimmti á Malkía, sjötti á Mijamín,

10 sjöundi á Hakkos, áttundi á Abía,

11 níundi á Jesúa, tíundi á Sekanja,

12 ellefti á Eljasíb, tólfti á Jakím,

13 þrettándi á Húppa, fjórtándi á Jesebeab,

14 fimmtándi á Bilga, sextándi á Immer,

15 seytjándi á Hesír, átjándi á Happísses,

16 nítjándi á Pelashja, tuttugasti á Jeheskel,

17 tuttugasti og fyrsti á Jakín, tuttugasti og annar á Gamúl,

18 tuttugasti og þriðji á Delaja, tuttugasti og fjórði á Maasja.

19 Er það starfskvöð þeirra að fara inn í musteri Drottins, eftir þeim reglum, er Aron forfaðir þeirra hafði sett, samkvæmt því, er Drottinn, Guð Ísraels, hafði boðið honum.

20 En að því er snertir aðra niðja Leví, þá voru af Amramsniðjum Súbael, af Súbaelsniðjum Jehdeja,

21 af Rehabja, af Rehabjaniðjum Jissía höfðingi,

22 af Jíseharítum Selómót, af Selómótsniðjum Jahat,

23 en af niðjum Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasíel, fjórði Jekameam.

24 Niðjar Ússíels voru: Míka, af niðjum Míka var Samír.

25 Bróðir Míka var Jissía, af niðjum Jissía var Sakaría.

26 Niðjar Merarí voru Mahlí og Músí og niðjar Jaasía, sonar hans.

27 Niðjar Merarí frá Jaasía syni hans voru: Sóham, Sakkúr og Íbrí.

28 Frá Mahlí var Eleasar kominn. Hann átti eigi sonu.

29 Frá Kís: Synir Kís: Jerahmeel.

30 Niðjar Músí voru: Mahlí, Eder og Jerímót. Þessir voru niðjar levíta eftir ættum þeirra.Þeir vörpuðu og hlutkesti, eins og frændur þeirra, Aronsniðjar, í viðurvist Davíðs konungs og Sadóks og Ahímeleks og ætthöfðingja prestanna og levítanna, ætthöfðingjarnir eins og yngri frændur þeirra.

31 Þeir vörpuðu og hlutkesti, eins og frændur þeirra, Aronsniðjar, í viðurvist Davíðs konungs og Sadóks og Ahímeleks og ætthöfðingja prestanna og levítanna, ætthöfðingjarnir eins og yngri frændur þeirra.

<< ← Prev Top Next → >>