Biblían, Fyrri kroníkubók, Kafli 14. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10352&pid=15&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Fyrri kroníkubók

Biblían

Síðari konungabók Fyrri kroníkubók Síðari kroníkubók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29

1 Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, steinhöggvara og trésmiði til þess að reisa höll handa honum.

2 Davíð kannaðist þá við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael, að konungdómur sinn væri hátt upp hafinn fyrir sakir þjóðar hans, Ísraels.

3 Davíð tók sér enn konur í Jerúsalem, og Davíð gat enn sonu og dætur.

4 Þetta eru nöfn þeirra sona, sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon,

5 Jíbhar, Elísúa, Elpelet,

6 Nóga, Nefeg, Jafía,

7 Elísama, Beeljada og Elífelet.

8 Þegar Filistar heyrðu, að Davíð væri smurður til konungs yfir allan Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann í móti þeim.

9 Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal.

10 Þá gekk Davíð til frétta við Guð og sagði: ,,Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér?`` Drottinn svaraði honum: ,,Far þú, ég mun gefa þá í hendur þér.``

11 Héldu þeir þá til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim, og Davíð sagði: ,,Guð hefir látið mig skola burt óvinum mínum, eins og þegar vatn ryður sér rás.`` Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím.

12 En þeir létu þar eftir guði sína, og voru þeir brenndir á báli að boði Davíðs.

13 Filistar komu aftur og dreifðu sér um dalinn.

14 Þá gekk Davíð enn til frétta við Guð, og Guð svaraði honum: ,,Far þú eigi í móti þeim. Far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undan bakatrjánum.

15 Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum bakatrjánna, þá skalt þú leggja til orustu, því að þá fer Guð fyrir þér til þess að ljósta her Filista.``

16 Og Davíð gjörði eins og Guð bauð honum og vann sigur á her Filista frá Gíbeon til Geser.Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir.

17 Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir.

<< ← Prev Top Next → >>