Biblían, Fyrri Samúelsbók, Kafli 24. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10260&pid=11&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Fyrri Samúelsbók

Biblían

Rutarbók Fyrri Samúelsbók Síðari Samúelsbók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

1 Davíð fór þaðan og hafðist við uppi í fjallvígjum við Engedí.

2 Og þegar Sál kom aftur úr herförinni móti Filistum, báru menn honum tíðindi og sögðu: ,,Sjá, Davíð er í Engedí-eyðimörk.``

3 Þá tók Sál þrjár þúsundir manns, einvalalið úr öllum Ísrael, og lagði af stað til að leita Davíðs og hans manna austan í Steingeitahömrum.

4 Og hann kom að fjárbyrgjunum við veginn. Þar var hellir, og gekk Sál inn í hann erinda sinna. En Davíð og hans menn höfðu lagst fyrir innst í hellinum.

5 Þá sögðu menn Davíðs við hann: ,,Nú er dagurinn kominn, sá er Drottinn talaði um við þig: ,Sjá, ég mun gefa óvin þinn í hendur þér, svo að þú getir við hann gjört það, er þér vel líkar.``` Og Davíð stóð upp og sneið leynilega lafið af skikkju Sáls.

Fyrri Samúelsbók 24:5 - David Spares Saul\'s Life
David Spares Saul\'s Life
6 En eftir á sló samviskan Davíð, að hann hafði sniðið lafið af skikkju Sáls.

7 Og hann sagði við menn sína: ,,Drottinn láti það vera fjarri mér, að ég gjöri slíkt við herra minn, Drottins smurða, að ég leggi hönd á hann, því að Drottins smurði er hann.``

8 Og Davíð átaldi menn sína harðlega og leyfði þeim ekki að ráðast á Sál. Sál stóð upp og gekk út úr hellinum og fór leiðar sinnar.

9 Þá reis Davíð upp og gekk út úr hellinum og kallaði á eftir Sál: ,,Minn herra konungur!`` Þá leit Sál aftur, en Davíð hneigði andlit sitt til jarðar og laut honum.

10 Og Davíð sagði við Sál: ,,Hví hlýðir þú á tal þeirra manna, sem segja: ,Sjá, Davíð situr um að vinna þér mein`?

11 Sjá, nú hefir þú sjálfur séð, hversu Drottinn gaf þig í mínar hendur í dag í hellinum. Og menn eggjuðu mig á að drepa þig, en ég þyrmdi þér og hugsaði með mér: ,Ég skal eigi leggja hendur á herra minn, því að Drottins smurði er hann.`

12 En líttu á, faðir, já líttu á lafið af skikkju þinni í hendi mér. Af því, að ég sneið lafið af skikkju þinni og drap þig ekki _ af því mátt þú skynja og skilja, að ég bý eigi yfir illsku og svikum og að ég hefi eigi syndgað á móti þér. En þú situr um að ráða mig af dögum.

13 Drottinn dæmi milli mín og þín, og Drottinn hefni mín á þér, en hendur legg ég ekki á þig.

14 Eins og gamalt máltæki segir: ,Ills er af illum von,` en hendur legg ég ekki á þig.

15 Hvern eltir Ísraelskonungur? Hvern ofsækir þú? Dauðan hund, eina fló!

16 Drottinn sé dómari og dæmi okkar í milli og sjái til og flytji mál mitt og reki réttar míns í hendur þér.``

17 Þegar Davíð hafði mælt þessum orðum til Sáls, þá kallaði Sál: ,,Er það ekki þín rödd, Davíð sonur minn?`` og Sál tók að gráta hástöfum.

18 Og hann mælti til Davíðs: ,,Þú ert réttlátari en ég, því að þú hefir gjört mér gott, en ég hefi gjört þér illt.

19 Og þú hefir í dag aukið á það góða, sem þú hefir auðsýnt mér, þar sem Drottinn seldi mig í þínar hendur, en þú drapst mig ekki.

20 Því að hitti einhver óvin sinn, mun hann þá láta hann fara leiðar sinnar í friði? En Drottinn mun umbuna þér þennan dag góðu, fyrir það sem þú gjörðir mér.

21 Og sjá, nú veit ég, að þú munt konungur verða og að konungdómur Ísraels mun staðfestast í þinni hendi.Vinn mér því eið að því við Drottin, að þú skulir ekki uppræta niðja mína eftir mig og ekki afmá nafn mitt úr ætt minni.`` [ (I Samuel 24:23) Og Davíð vann Sál eið að því. Fór Sál því næst heim til sín, en Davíð og menn hans fóru upp í fjallvígið. ]

22 Vinn mér því eið að því við Drottin, að þú skulir ekki uppræta niðja mína eftir mig og ekki afmá nafn mitt úr ætt minni.`` [ (I Samuel 24:23) Og Davíð vann Sál eið að því. Fór Sál því næst heim til sín, en Davíð og menn hans fóru upp í fjallvígið. ]

<< ← Prev Top Next → >>