Biblían, Fyrri Samúelsbók, Kafli 3. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10239&pid=11&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Fyrri Samúelsbók

Biblían

Rutarbók Fyrri Samúelsbók Síðari Samúelsbók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

1 Sveinninn Samúel gegndi þjónustu Drottins hjá Elí. Orð frá Drottni var sjaldgæft á þeim dögum, vitranir voru þá fátíðar.

2 Þá bar svo til einn dag, að Elí svaf á sínum vanalega stað. En augu hans voru tekin að daprast, svo að hann var hættur að sjá,

3 og enn var ekki slokknað á Guðs lampa, en Samúel svaf í musteri Drottins, þar sem Guðs örk var.

4 Þá kallaði Drottinn á Samúel. Hann svaraði: ,,Hér er ég.``

5 Og hann hljóp til Elí og sagði: ,,Hér er ég, því að þú kallaðir á mig.`` En Elí sagði: ,,Ég hefi ekki kallað. Far þú aftur að sofa.`` Fór hann þá og lagðist til svefns.

6 En Drottinn kallaði enn að nýju: ,,Samúel!`` Og Samúel reis upp og fór til Elí og sagði: ,,Hér er ég, því að þú kallaðir á mig.`` En hann sagði: ,,Ég hefi ekki kallað, sonur minn. Leggst þú aftur til svefns.``

7 En Samúel þekkti ekki enn Drottin, og honum hafði ekki enn birst orð frá Drottni.

8 Þá kallaði Drottinn enn á Samúel, í þriðja skiptið. Og hann reis upp og fór til Elí og sagði: ,,Hér er ég, því að þú kallaðir á mig.`` Þá skildi Elí, að það var Drottinn, sem var að kalla á sveininn.

9 Fyrir því sagði Elí við Samúel: ,,Far þú og leggstu til svefns, og verði nú á þig kallað, þá svara þú: ,Tala þú, Drottinn, því að þjónn þinn heyrir.``` Fór Samúel þá og lagðist til svefns á sínum stað.

10 Þá kom Drottinn og gekk fram og kallaði sem hin fyrri skiptin: ,,Samúel! Samúel!`` Og Samúel svaraði: ,,Tala þú, því að þjónn þinn heyrir.``

11 Drottinn mælti þá við Samúel: ,,Þá hluti mun ég gjöra í Ísrael, að óma mun fyrir báðum eyrum allra þeirra, er það heyra.

12 Á þeim degi mun ég láta fram koma á Elí allt það, er ég hefi talað um hús hans _ frá upphafi til enda.

13 Því að ég hefi kunngjört honum, að ég muni dæma hús hans að eilífu vegna misgjörðar þeirrar, er honum var kunn, að synir hans leiddu bölvun yfir sig, og þó hafði hann ekki taum á þeim.

Fyrri Samúelsbók 3:13 - God Calls Samuel
God Calls Samuel
14 Og fyrir því hefi ég svarið húsi Elí: Sannlega skal eigi verða friðþægt fyrir misgjörð Elí húss með sláturfórn eða matfórn að eilífu.``

15 Lá Samúel nú kyrr allt til morguns. Og um morguninn reis hann árla og lauk upp dyrunum á húsi Drottins. En Samúel þorði ekki að segja Elí frá sýninni.

16 Elí kallaði á Samúel og sagði: ,,Samúel, sonur minn!`` Hann svaraði: ,,Hér er ég.``

17 Elí sagði: ,,Hvað var það, sem hann talaði við þig? Leyndu mig því ekki. Guð láti þig gjalda þess nú og síðar, ef þú leynir mig nokkru af því, sem hann talaði við þig.``

18 Þá sagði Samúel honum allt saman og leyndi hann engu. En Elí sagði: ,,Hann er Drottinn. Gjöri hann það, sem honum þóknast!``

19 Samúel óx, og Drottinn var með honum og lét ekkert af því, er hann hafði boðað, falla til jarðar.

20 Og allur Ísrael frá Dan til Beerseba kannaðist við, að Samúel væri falið að vera spámaður Drottins.Og Drottinn hélt áfram að birtast í Síló, og Drottinn opinberaðist Samúel í Síló með orði sínu.

21 Og Drottinn hélt áfram að birtast í Síló, og Drottinn opinberaðist Samúel í Síló með orði sínu.

<< ← Prev Top Next → >>