Biblían, Fjórða Mósebók, Kafli 36. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10153&pid=6&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Fjórða Mósebók

Biblían

Þriðja Mósebók Fjórða Mósebók Fimmta Mósebók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36

1 Ætthöfðingjarnir af kynkvísl Gíleaðs sona, Makírssonar, Manassesonar, af kynkvíslum Jósefs sona, gengu fram og töluðu fyrir augliti Móse og fyrir augliti höfuðsmannanna, ætthöfðingja Ísraelsmanna,

2 og sögðu: ,,Drottinn hefir boðið þér, herra, að fá Ísraelsmönnum landið til eignar með hlutkesti. Þér var og, herra, boðið af Drottni að fá eignarhluta Selofhaðs bróður vors dætrum hans í hendur.

3 Giftist þær nú einhverjum af sonum annarra ættkvísla Ísraelsmanna, þá tekst erfð þeirra af erfð feðra vorra og bætist við erfð þess ættleggs, er þær giftast í, og tekst þannig af erfðahluta vorum.

4 Og þegar fagnaðarár Ísraelsmanna kemur, þá verður erfð þeirra bætt við erfð þess ættleggs, er þær giftast í, og erfð þeirra tekst af erfð ættleggs feðra vorra.``

5 Þá gaf Móse Ísraelsmönnum svofelld fyrirmæli að boði Drottins: ,,Ættleggur Jósefs sona hefir rétt að mæla!

6 Þetta eru fyrirmæli Drottins um dætur Selofhaðs: Þær mega giftast hverjum sem þær vilja; aðeins skulu þær giftast einhverjum úr föðurætt sinni,

7 svo að erfð Ísraelsmanna gangi eigi frá einum ættlegg til annars, heldur skulu allir Ísraelsmenn halda fast í erfð föðurættar sinnar.

8 Sérhver dóttir af ættkvíslum Ísraelsmanna, er erfð hlýtur, skal giftast í föðurætt sína, svo að hver Ísraelsmanna erfi föðurleifð sína

9 og erfð gangi eigi frá einum ættlegg til annars, heldur skulu allir ættleggir Ísraelsmanna halda fast í erfð sína.``

10 Dætur Selofhaðs gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse,

11 og giftust þær Mahla, Tirsa, Hogla, Milka og Nóa, dætur Selofhaðs, sonum föðurbræðra sinna.Giftust þær mönnum af kynkvísl sona Manasse Jósefssonar, og varð erfð þeirra kyrr í ættlegg föðurættar þeirra.

12 Giftust þær mönnum af kynkvísl sona Manasse Jósefssonar, og varð erfð þeirra kyrr í ættlegg föðurættar þeirra.

<< ← Prev Top Next >>